Evrópumál

68. Þróun Internetsins, Internet hluta, Internet of Things

24.6.2009

Framkvæmdastjórnin hefur sent frá sér orðsendingu um þróun Internetsins Internet of Things ? An action plan for Europe. Í orðsendingunni segir að þróun Internetsins sé stöðugt ferli. Ein af mestu breytingunum sem við blasa nú er nettenging hluta, allt frá bókum til bíla, frá rafmagnstækjum til matvara. Þessir hlutir munu í sumum tilfellum hafa eigin IP kóða, Internet Protocol, vera hluti flókinna kerfa og nota skynjara til að ná í upplýsingar frá umhverfi sínu og bregðast við þeim.

Framkvæmdastjórnin hefur sent frá sér orðsendingu um þróun Internetsins Internet of Things An action plan for Europe. Í orðsendingunni segir að þróun Internetsins sé stöðugt ferli. Ein af mestu breytingunum sem við blasa nú er nettenging hluta, allt frá bókum til bíla, frá rafmagnstækjum til matvara. Þessir hlutir munu í sumum tilfellum hafa eigin IP kóða, Internet Protocol, vera hluti flókinna kerfa og nota skynjara til að ná í upplýsingar frá umhverfi sínu og bregðast við þeim. Sem dæmi matarafurðir sem fylgjast með hitastigi allt framleiðsluferlið og hlutir sem hafa samskipti við umhverfi sitt eins og loftræstikerfi sem bregðast við nærveru fólks.

Internet of Things, IoT, er talið munu auðvelda mjög lausnir á málum sem verða ofarlega á baugi á næstu árum svo sem öldrun, en kerfi til að fylgjast með heilsufari einstaklinga eru hluti af þessari þróun.

Rétt er að vekja athygli á þremur atriðum sem öðrum fremur sýna hve flókin þessi þróun er.

-   Líta verður á þessa þróun sem sérstaka þróun en ekki eingöngu framhald á því sem þegar hefur gerst í Internetþróun því hér verður að hluta til um sérstök kerfi að ræða en að hluta munu þau reiða sig á innviði sem þegar eru til reiðu fyrir Internetið.

-   Internet of Things verður gert með samþættingu kerfa sem þegar eru til við kerfi sem sett verða upp til að veita nýja þjónustu.

-   Internet of Things nær yfir ný samskipti sem eiga sér stað milli manns og tækis og tækis við tæki. Slík tæki eru í dag á bilinu 50 til 70 milljarðar og aðeins um 1% þeirra eru tengd í dag. Á meðan fjöldi tengdra tækja eykst minnka þau og eru sum að verða minni en svo að mannlegt auga fái greint þau. Þá eru tæki æ meira tengd með þráðlausri tækni.

Þessi nýja tækni getur bætt lífsgæði og skapað ný störf og viðskiptatækifæri. IoT getur á næstu árum gjörbreytt því hvernig þjóðfélag okkar virkar. Með því að taka frumkvæði gæti Evrópa tekið að sér hlutverk leiðtoga við að innleiða IoT. Ef Evrópu mistekst þetta getur það leitt til þess að hún þurfi að taka upp tækninýjunar sem þróaðar hafa verið án þess að grundvallargildum hennar hafi verið tryggð eins og til dæmis verndun einkalífsins og einkagagna. með því að koma af stað umræðum og umhugsun um málið hefur framkvæmdastjórnin hugsað sér að leiða þessa þróun.

Á eftirfarandi slóð má lesa meira um Internet of Things: http://eur-lex.europa.eu/LexUriServ/LexUriServ.do?uri=COM:2009:0278:FIN:EN:PDF


 



Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica