60. Könnun framkvæmdastjórnarinnar á vefsíðum flugrekenda sem selja flugmiða
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lét gera könnun á vefsíðum flugrekenda sem selja flugmiða og með hvaða hætti löggjöf sambandsins um neytendavernd er fylgt. Í niðurstöðum könnunarinnar, sem birtar voru 14. maí 2009, kemur fram að margir flugrekendur hafa bætt ráð sitt frá fyrri könnun og sýna verð farmiða með gegnsærri og heiðarlegri hætti en áður.
Kannanirnar eru hluti af átaki framkvæmdastjórnarinnar til að stöðva ólöglega söluhætti sem fram fóru á slíkum síðum. Meðal annarra aðferða sem notaðar voru var að gefa til kynna að miðar væru ókeypis án þess að svo væri og bæta smám saman gjöldum við söluverð eftir því sem söluferlinu miðaði áfram. Af 137 athugasemdum sem gerðar voru eftir fyrstu könnunina sem gerð var í upphafi átaksins í september 2007 hafa 115 verið leiðréttar.
Nokkur flugfélög svöruðu ekki athugasemdum framkvæmdastjórnarinnar og birti framkvæmdastjórnin þeim að óvörum nöfn þeirra flugfélaga sem ekki uppfylltu viðmiðunarreglur. Þessi leið hreyfði við flugrekendunum sem margir bættu ráð sitt.
Þetta má lesa í Europolitics 3754 sem finna má hér.
