Evrópumál

59. Framkvæmdastjórnin leggur fram nýja tillögu um fjármögnun flugverndar

20.5.2009

Framkvæmdastjórnin lagði fram þann 11. maí 2009 tillögu að nýrri tilskipun um fjármögnun flugverndar.

Framkvæmdastjórnin lagði fram þann 11. maí 2009 tillögu að nýrri tilskipun um fjármögnun flugverndar. Gegn óskum Evrópuþingsins og flugrekenda kveður tillagan ekki á um að flugvernd skuli alfarið fjármögnuð af almannafé. Í tillögunni segir að flugvernd sé verkefni stjórnvalda en þeim beri einnig að ákveða með hvaða hætti hún sé fjármögnuð.

Gegnsæi er eitt af aðalmarkmiðum tillögunnar og eiga flugrekendur rétt á að fá einu sinni á ári sundurliðun á kostnaði til þess að sannreyna að gjöld séu ekki oftekin en þau eiga að vera byggð á kostnaði. Þá er lagt til að vilji flugvallayfirvöld breyta innheimtu beri þeim að hafa samráð við flugrekendur. Gert er ráð fyrir að ríkin hafi eftirlit með framkvæmd tilskipunarinnar sem á að gilda fyrir alla flugvelli, stóra og smáa.

Úttektir sýna að 35% útgjalda flugvalla eru vegna verndarráðstafana samanborið við 6-8% fyrir 11. september 2001.

Þetta má lesa í Europolitics 3751 sem finna má hér.

 



Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica