Evrópumál

39. Evrópuþingið og ráðherraráðið að ná samkomulagi um úthlutun lendingartíma

27.4.2009

Samkomulag er að nást milli Evrópuþingsins og ráðherraráðsins um að slaka á reglum um úthlutun lendingartíma á flugöllum vegna efnahagskreppunnar sem nú ríður yfir heiminn.

Samkomulag er að nást milli Evrópuþingsins og ráðherraráðsins um að slaka á reglum um úthlutun lendingartíma á flugöllum vegna efnahagskreppunnar sem nú ríður yfir heiminn. Fulltrúar þingsins og ráðsins hittust á fundi um þetta mál þann 23. apríl 2009. Markmiðið er að tryggja að flugfélög missi ekki lendingartíma sem þau nota ekki vegna samdráttar í flugi á meðan á kreppunni stendur. Líklegt er talið að lendingartímum sem úthlutað hefur verið fyrir árið 2009 verði úthlutað óbreyttum árið 2010, hvernig sem notkun hefur verið varið.

Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica